""

Forsvarsmaður

Stjórn Rannsóknarmiðstöðvar skapandi greina er skipuð fimm einstaklingum sem kosnir eru á aðalfundi. Stjórnin er skipuð til fjögurra ára í senn. Stjórnin skal skipuð fagaðilum innan skapandi greina.  Stjórnin er í dag skipuð:

  • Björg Stefánsdóttir – Kynningarmiðstöð Íslenskrar myndlistar
  • Hilmar Sigurðsson – Kvikmyndaframleiðandi
  • Margrét Sigrún Sigurðardóttir, Viðskiptafræðideild HÍ
  • Ólöf Gerður Sigfúsdóttir – Listaháskóla Íslands
  • Sigtryggur Baldursson – Útón

Skapandi greinar er íslensk þýðing á hugtakinu Creative industries, sem í grófum dráttum vísar til þeirrar atvinnu eða iðngreina sem byggja á hinum hefðbundnum listgreinum (Caves,2000). Nákvæmari skilgreiningar á skapandi atvinnugreinum gera yfirleitt tilraun til þess að fastsetja hvaða greinar þetta eru og eru þær skilgreiningar misjafnar.

Ólíkt menningarhagfræði, hafa rannsóknir á skapandi greinum ekki miðað að því að réttlæta opinbera styrki til menningar, heldur hefur umfjöllunin gengið út frá þeirri forsendu að skapandi greinar eigi að skoða á sama hátt og aðrar atvinnugreinar.

Þó að skapandi greinar séu á margan hátt ólíkar hefðbundnum atvinnugreinum eru þær engu að síður atvinnu- og tekjuskapandi.

Rannsóknir á skapandi greinum hafa oft miðað að því að kortleggja umfang og skipulag skapandi greina, og þá sérstaklega í þeim breytingum sem hafa orðið á dreifingarleiðum í tónlistar- og kvikmyndaiðnaði og bókaútgáfu.

  • Stuðningsumhverfi skapandi greina – 2012

Skýrsla unnin við atvinnuvegaráðuneytið (óbirt)

Rannsóknir og skýrslur
""

Úttekt á umfangi Íslenska tónlistariðnaðarins, unnið fyrir Samtónn, ÚTÓN og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.

""

Skýrsla unnin fyrir Samtök sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu.

""

Skýrsla unnin fyrir Samtök sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu.

""

Skýrsla unnin fyrir Samráðsvettvang skapandi greina, Íslandsstofu og fjögur ráðuneyti.

Share