Um Viðskiptafræðistofnun

Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands er fræðslu- og rannsóknastofnun sem er starfrækt í umboði Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.

Viðskiptafræðistofnun býður upp á MBA-nám. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu MBA-námsins.

Öflugt rannsóknarstarf er unnið hjá stofnuninni, bæði fræðilegar rannsóknir og útgáfustarfsemi auk þess sem stofnunin tekur að sér hvers lags þjónusturannsóknir og úttektir fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.